Fimmtudaginn 26. febrúar kl. 17:15 – 19:45 verður annar fundur af þremur undir leiðsögn Gunnars Hrafns Birgissonar sálfræðings. Fundirnir eru haldnir í Borgartúni3.
Í þessum fundum heldur Gunnar erindi og stýrir umræðum um hvernig við getum greint og nýtt styrkleika okkar og góð lífsgildi í gegnum kreppuástandið. Hugað er að góðum lífsgildum, mikilvægi hjálplegs hugarfars og þess að fólk tali saman, tjái sig, læri af öðrum og leiti úrræða.
Frítt er inn og allir velkomnir.