Hér má lesa færslur sem gestir skrifuðu í gestabók Borgarafunda á árunum 2008–2009. Gestabókin er varðveitt sem hluti af sögu vefsins og er nú lokuð fyrir nýjum færslum.
Frábært framtak Gunni !!
Excellent use of technology. My Icelandic is very poor but I had to comment on the high quality of this site. Thank you and the best of luck steering my beloved Iceland back on track.
Sæll Gunnar þetta var meiriháttar fundur hjá ykkur í kvöld.Ég var hissa hvað margir ráðherrar mættu.Ég hef sjaldan séð eins góða fundarstjórn eins og hjá þér Gunnar, þú ert snillingur.
ég er orðin leiður á þessu helvítis væli í ykkur þarna í Höfuðborgini (borg vælukjóana) ef þessi kreppa er einhverjum að kenna er það okkur sjálfum .
Það vorum við sem eiddum þessum peningum það vorum við sem tókum lánin ekki ríkið þannig að þessi þjóð ætti að halda kjafti og leifa þeim sem eru að reyna að gera eitthva annað en að væla eins og þið eru að gera alla daga að hafa frið yil þess svo þið ættuð að skammast ykkar og þeigja einu sinni ég er búinn að fá nóg af þessu þið talið ekki fyrir mig
Þetta er í fyrsta sinn sem ég er Virkilega stolt af minni þjóð! Ég elska að sjá hvað við stöndum öll saman! Áfram Ísland ! :o)
Stórkostlegt og kjarkmikið framtak, virðingarvert og þroskað. Ríkissjóður er fyrir fólkið, ekki sjálfan sig.
Frábært framtak! Þetta sýnir að þær jákvæðu breytingar sem verða í þjóðfélaginu, og uppbygging, verða af völdum fólksins í landinu en ekki ráðamanna (væri samt betra ef ráðherrarnir væru ekki alltaf að klúðra öllu..)
Ég vona að sem flest af ykkur bjóða sig fram til kosninga, svo við getum loksins haft einhvern með viti að stýra landinu 🙂
Bý í Danmörku svo ég kemst ekki, en ég verð með í anda, og ef þetta verður sýnt í beinni þá horfi ég spennt á útsendinguna 🙂
Ég mæti! Spurning hvort að Skrílþingismennirnir gerið það?
Frábært framtak. Ég er sérstaklega ánægður með not á Youtube sem og netinu almennt. Þetta er framtíðin. Sjáið bara hvað gerðist og er að gerast í tengslum við forsetakosningar í USA sem nú eru liðnar.
kveðjur að norðan
Við höfum tíma til þess að setja saman borgaralegahreyfingu fyrir næstu kosningar.
koma svo!
látum þessa rödd okkar hljóma á Alþingi
Þetta er framúrskarandi vinna sem þið eruð að vinna hér og gleður mig að einhverjir hafi þorað að leggja af stað og vera leiðandi í baráttu allrar þjóðarinnar fyrir réttlæti og lýðræði.
Ég á mér þann draum að sjá Ísland sem land fólksins, land þar sem manngildi og auðlegð lands eru höfð í fyrirrúmi, land sem er laust við græðgi fjármála aflanna og tilbúið að hjálpa jafnvel sínum minnsta bróður að blómstra.
Gaman að sjá hvernig þetta er að blómstra og dafna, á örugglega eftir að bera ávöxt. Raddir fólks farnar að heyrast, loksins, án hræðslu. Verst hvað það var samt dýrkeypt. Bestu þakkir fyrir fábært framtak. Sjáumst á NASA.
Veruleikafyrring og skrumskæling á hugtakinu \\\"lýðræði\\\" Því miður einkennir þetta ráðamenn þjóðarinnar. Við verðum því að standa þétt saman og knýja fram breytingu á stjórnarfari landsins. Það verður einfaldlega eitthvað að fara að gerast.
Vil hrósa ykkur fyrir mjög flotta uppsetningu á vefsíðunni, gaman að sjá wordpress notað á svona flottan hátt fyrir vefmiðill. Ég nota þetta sem sýnidæmi fyrir hvernig open source hugbúnaður nýtist í grasrótarstarfi.
Frábært framtak, heimasíða til fyrirmyndar. Mætti of seint í fyrradag, 8. des. og bíð spenntur eftir að heyra hvað Gylfi sagði í upphafi.
--- Í dag eru tvö lið á Íslandi, við og þeir, þ.e.a.s. líðurinn og peningarnir já og fullt af áheyrendum. Flestir fulltrúar lífeyrissjóða og verkalýðshreyfingar virðast vera í peningaliðinu!!!! Stöndum saman í að efla líðinn, liðið okkar.
Takk fyrir frábæra fundi. Allir sem að þeim standa eiga hrós skilið.
Hvernig væri að fá fjölmiðlamenn til þess að sitja fyrir svörum á næsta fundi. Þeir geta kannski útskýrt fyrir okkur hvernig fréttaflutningur þeirra vikrar. Afhverju eru þeir að mála upp svatra mynd af mótmælendum, við sem erum fólkið í landinum. Og geta þeir svarað því hvort þeim sé stjórnar af \\\"æðri máttar völdum\\\" (eins og sýndi sig í málinu með Reyni Traustason og Jón Bjarka).
Vildi bara koma þessari ábendingu áleiðs. Ég þakka annars fyrir frábært framtak.
Bestu kveðjur,
Helena
Mætti ég koma með tillögu að næsta borgarafundi að þar verði rætt um Alþjóðagjaldeyrissjóðinni, skilmálana sem eru settir fyrir láninu.
Þar gætu mætt fulltrúar stjórnarmálaflokka, ríkisstjórnarinnar og fjölmiðlar.
Mér þætti áhugavert að heyra svör fjölmiðla við því hvers vegna ekki hefur komið ein frétt um það hvað AGS hefur gert öðrum löndum sem hafa tekið lán hjá honum.
Og svo auðvitað frá stjórnvöldum um það hverjir skilmálarnir eru á láninu.
mæli með grein um AGS á www.this.is/nei