Má ekki bjóða yður þjóðskrána? – Einar Már Guðmundsson

 

„Má ekki bjóða yður þjóðskrána?”

Ræða flutt á Opnum borgarafundi #1

í IÐNÓ, mánudaginn 27. október 2008

 

 

 

 

Hvort sem sagan er línurit eða súlurit í auga hagfræðingsins er heimurinn kartafla í lófa guðs.

***

Vissulega er hinn frjálsi maður ekki lengur veginn með vopnum, ekki höggvinn í herðar niður eða brenndur á báli. Sem slíkur gæti hann öðlast samúð sagnritara og orðið gjaldgengur á myndbandaleigum framtíðarinnar. Þess í stað er honum svipt burt með snyrtilegri reglugerð og málinu skotið til markaðarins sem mállaus vinnur sín verk.

***

Ég byrja á smá ljóðabrotum, venjunni samkvæmt, en það er líka til mannætubrandari sem er einhvern veginn svona: Mannæta flýgur á fyrsta farrými. Flugfreyja kemur með matseðil, skrautlegan með nokkrum valkostum. Mannætan er afar kurteis, eins og mannætur eru víst við fyrstu kynni. Mannætan rennir augunum yfir seðilinn og segir svo við flugfreyjuna: Ég sé ekkert bitastætt á matseðlinum. Vilduð þér vera svo vingjarnlegar að færa mér farþegalistann?Ég ætla ekki að fara að líkja auðmönnum Íslands, sem komið hafa okkur á kaldan klaka ásamt stjórnvöldum, við mannætur, ekki í bókstaflegri merkingu, en eftir að hafa fengið nánast allt upp í hendurnar, banka og ríkisfyrirtæki, virðast þeir samt hafa sagt við stjórnvöld og eftirlitsstofnanir: Það er ekkert fleira bitastætt á matseðlinum. Vilduð þið vera svo vingjarnleg að rétta okkur þjóðskrána?

Og stjórnvöld ábyrgjast heilt spilavíti, rússneska rúllettu, og niðurstaðan er ónýtt mannorð heillar þjóðar – og við sem vorum svo stolt og áttum stundum ekkert nema stoltið. Aumingja Jón Sigurðsson í nepjunni niðri á Austurvelli og Jónas Hallgrímsson, svo laglegur í frakkanum. Hvar er nú andi frönsku byltingarinnar og þýsku rómantíkurinnar þegar það hafa verið sett á okkur hryðjuverkalög þar sem við megum dúsa með skuggalegustu þjóðskipulögum heims og þjóðhöfðingjum sem enginn vill hitta í myrkri.

Hver Osama bin Laden er í þessu dæmi skal ósagt látið, en margir af auðjöfrunum eru flúnir land og láta ekki ná í sig eða aka um með lífverði sér við hlið. Verður ekki allt tal um turnana tvo í íslenskum stjórnmálum dálítið kaldhæðnislegt í þessu samhengi? Hafa þeir ekki orðið

fyrir hryðjuverkaárás, jafnvel sjálfsmorðsárás? Eru þeir ekki hrundir og það af eigin völdum? Ég ætla heldur ekki að líkja neinum við feðgana Kim Yong Il og Kim Il Sung, en stjórnvöld og eftirlitsstofnanir þeirra virðast hafa sagt við auðmenn þessa lands þegar þeir báðu þau um þjóðskrána: Já, gjörið þið svo vel. Er ekki eitthvað fleira sem við getum gert fyrir ykkur?

Þetta eru auðvitað ekkert annað en landráð, hafi það orð einhverja merkingu lengur, og það er því skýlaus krafa okkar sem eigum ekkert nema sjálf okkur og börnin okkar að eignir auðmannanna verði frystar strax, og kerfið hætti að rannsaka sjálft sig. Almenningur vill að fjármálaeftirlitið sé sett af og það og aðrar eftirlitsstofnanir séu rannsakaðar; líka Seðlabankinn, líka ríkisstjórnin. Menn sem hafa haft hagsmuni af sukkinu eru látnir rannsaka sukkið, og fjármálaspillingin teygir sig jafnvel inn í ríkisstjórnina, en við sitjum uppi með risavaxinn reikning, tólf þúsund milljarða, og þeir ætlast til að við borgum, við, börnin okkar og barnabörnin og barnabarnabörnin líka.

Ég hirði ekki um að halda romsunni áfram, slíkur er glæpurinn sem framinn hefur verið, og þessi glæpur hefur verið framinn með vitund stjórnmálamanna, þeirra sem einkavæddu bankana, gáfu þá raunar pólitískum vildarvinum, já létu þá í hendur fjárplógsmanna sem veðsett hafa okkur langt fram í tímann og gert okkur að bónbjargarmönnum hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og öðrum lánastofnunum.

Við erum gíslar á lögreglustöð heimskapítalismans, því reikningurinn sem skilinn var eftir á veitingahúsi hans er svo stór að enginn getur borgað hann og ríkisstjórnin segir ekki eins og strákarnir í Englum alheimsins: Við erum öll saman á Kleppi, það væri of gott til að vera satt, heldur segir hún: Þjóðin borgar. Við munum pína skrílinn. Já, ríkisstjórnin er alveg jafn ábyrgðarlaus og strákarnir sem snæddu á Grillinu í áðurnefndri sögu. Munurinn er bara sá að samfélagið var búið að taka af þeim ábyrgðina en ríkisstjórnin var kosin til að axla ábyrgð.

***

Marktækur hagfræðingur, sem var búinn að vara okkur við, segir að ríkisstjórn Íslands og seðlabanki séu engu hæfari sem stjórnendur nútímahagkerfis en þau væru sem stjarnvísindamenn. Þau skildu ekki að uppsveifla íslenska hagkerfisins árin 2005 og 2006 byggðist á skuldasöfnun – lán voru tekin til þess að standa í skilum með önnur lán – og nú vita þau ekki hvernig unnt er að ná jafnvægi aftur þegar pappírsauðurinn er horfinn.

Og hagfræðingurinn bætir við: Það er ólíklegt að nýir leiðtogar sem væru valdir af handahófi í símaskrá gætu valdið jafnmiklum efnahagslegum glundroða og núverandi stjórnvöld.

Þarf frekari vitnanna við? Hvað segja stjórnvöld og hvað segja fjárplógsmennirnir? Þau segja ekkert og þeir segja ekkert. Enginn segir neitt. Það ætlar enginn af þessu fólki að axla ábyrgð. Sigurjón bankastjóri, sem lýsti ICESAVE‐reikningunum sem tærri snilld, segist ekki bera neina ábyrgð, og Halldór Kristjánsson félagi hans ekki heldur, en þessum reikningum var komið á fót þegar engir marktækir bankar vildu lengur lána íslensku bönkunum. Já, þá var þeim komið á fót með ábyrgð í þjóðskránni. „að eina sem ég þarf að gera er að kíkja í lok dags hvað er kominn mikill peningur inn,” sagði Sigurjón bankastjóri hlæjandi við blaðamann einhvers viðskiptablaðsins. „að bættust við fimmtíu milljónir punda bara á föstudaginn!” Þetta hafa verið skemmtilegir föstudagar sem við fáum nú í hausinn.

Bera slíkir menn enga ábyrgð? Ekki segja þeir, og allir meðvirku stjórnmálamennirnir taka undir. Það má ekki dæma, það má ekki hafa skoðun. Samt er enginn að æpa úlfur úlfur, þeir halda bara sjálfir eða heyra það löngu á undan öllum öðrum, en þegar jafnvel götunnar menn sem stela einum lifrarpylsukepp og koníaksfleyg þurfa að sæta ábyrgð er ekkert nema eðlilegt að þeir sem hafa komið þjóðinni á kaldan klaka geri grein fyrir máli sínu og reyni að bæta fyrir brot sín, jafnvel þótt brotin kunni að vera lögleg og hafi gerst með blessun stjórnvalda. Hér er einfaldlega svo miklu meira í húfi; þjóðin getur ekki beðið eins og Breiðavíkurdrengirnir eftir einhverri hvítbók, það væri eins hægt að syngja fyrir okkur gamla Flowers‐lagið Slappaðu af, nema að verið sé að viðurkenna að við séum eins og Breiðavíkurdrengirnir, við höfum verið misnotuð í einhvers konar kennitöluflakki um öll hagkerfi heimsins og gott ef ekki sólkerfi.

***

Sú hagfræðibóla, sem stjórnvöld settu engar skorður, var svo augljós vitleysa og stjórnvöldum var margsinnis bent á það, nei ekki einu sinni, ekki tvisvar, heldur hvað eftir annað. En í stað þess að taka mark á þessum ráðleggingum fóru ráðherrarnir út í lönd sem kynningarfulltrúar bankanna. Héldu Geir Haarde og Ingibjörg Sólrún virkilega að ástandið myndi lagast ef þau héldu blaðamannafundi? Hvaða stjórnspeki er þetta eiginlega? En þetta fólk ber auðvitað enga ábyrgð. Þau gátu ekki séð þetta fyrir, segja þau. Nei, þau hlustuðu bara ekki á neinar viðvaranir, þar liggur ábyrgðin, og þess vegna á að skylda þau til að hlusta á það sem við erum að segja.

Það voru orðin hálfgerð trúarbrögð að hægt væri að kjafta ástandið upp og niður, enda réð ríkisstjórnin einn aðalkjaftaskinn til sín sem ráðgjafa og hann hætti þegar hann komst að því að ráðgjafastörfunum fylgdi vinna. Við viljum líka sjá ábyrgð greiningardeildafólksins, sem virðist hafa verið í vinnu við að ljúga að okkur. Skoðið tekjublað Frjálsrar verslunar og sjáið hvað þetta fólk var með í laun! Sjaldan undir fimm milljónum á mánuði. Fyrir hvað? Fyrir að ljúga? Skoðið líka hvernig fólk nátengt ríkisstjórninni hefur makað krókinn, og nú ætlar þetta fólk að fara að rannsaka sjálft sig. Það er annars merkilegt að tekjublað Frjálsrar verslunar er allt í einu orðið eins og mögnuð heimildaskáldsaga. Fyrir hvað voru forstöðumenn greiningardeilda, fyrirtækjasviða og ég veit ekki hvaða sviða að fá sjö milljónir, átta milljónir, tíu milljónir, í mánaðarlaun? Ef Jóhann Páll Valdimarsson borgaði ljóðskáldum slík laun myndi Forlagið strax fara á hausinn. Samt virðast mér ljóð margra skálda margfalt verðmætari en pappírarnir sem þetta fólk var að sýsla með. Verður þetta fólk ekki líka að axla ábyrgð, reikna sér eðlileg laun og skila afganginum upp í skuldir? Öðruvísi verður engin sátt í þessu þjóðfélagi. Þannig er Ísland í dag.

Eða eigum við nú þegar skuldunum rignir yfir okkur að fara bara með reikningana okkar út í tunnu og halda síðan blaðamannafund? Hvað á fólkið sem nú missir húsin sín, vinnuna, að gera? Á það að halda blaðamannafund? Eins og stjórnvöld. Sjá menn ekki hvílík vanhæfni hér er á ferð? En þau bera enga ábyrgð. Samt stjórna þau landinu. Halló! Þetta er eins og að segja: Ég rústaði húsinu, en ég ber enga ábyrgð af því að ég gerði mér ekki grein fyrir að ég væri að rústa húsinu. Myndi einhver taka slíka röksemdafærslu gilda? Nei, en þetta er röksemdafærslan sem okkur er boðið upp á.

Geir Haarde átti að vita að hann var á hriplekum báti, en hann sagði: Við róum bara áfram og sjáum hvað gerist. Það er best að gera sem minnst. Það var speki frjálshyggjunnar, að gera

ekki neitt. Aðspurð um vanda bankanna sagði hinn leiðtogi ríkisstjórnarinnar, Ingibjörg Sólrún: Þetta er fræðilegt vandamál, og bætti við: Ég fæ ekki betur séð en að bankarnir standi ágætlega.

Hún sagði ekki þetta er hræðilegt vandamál, heldur fræðilegt, og fór svo til Köben með Sigurði Einarssyni, fjármálafurstanum sem nú byggir sér níu hundruð fermetra sveitasetur í Borgarfirðinum og hefur nýverið látið bankann sem farinn er á hausinn kaupa handa sér hús í London upp á tvo milljarða. Geir Haarde og Ingibjörg Sólrún ætla kannski að sitja með Sigurði Einarssyni og dást að sólarlaginu í Borgarfirðinum og segja: Þetta er fræðilegt vandamál, þegar allir verða farnir úr landinu, og Sigurður Einarsson, varla ber hann ábyrgð, þessi mikli snillingur, sem fyrir örfáum vikum fékk hundruð milljóna í kaupauka. Fyrir hvað? Þetta var maðurinn sem hótaði að fara úr landi ef hann fengi ekki ofurlaun.

Já, Ingibjörg Sólrún, hvað varð af hinni hagsýnu húsmóður kvennalistans? Það eru ekki bara unglingar sem lenda í vondum félagsskap. Stjórnvöld hafa verið í vasanum á ábyrgðarlausum fjármálafurstum og nú ber þeim að taka ábyrgð á því.

Nei annars, þetta er ekki þeim að kenna. Þau bera enga ábyrgð. Geir Haarde forsætisráðherra segir að kreppan sé bara einhver óþægilegur vindur sem kom frá útlöndum, svipaður óveðrinu í síðustu viku, og ef það hefði ekki gerst, ef það hefði ekki blásið, þá væri allt í himnalagi. Það var sem sé ekkert að, bara ef bullið gat haldið áfram. Allt fjármálasukkið, ofurlaunin, kaupaukarnir, endalaus sala á verðlausum bréfum og endalaus niðurlæging á fólki sem vann heiðarleg störf. Laun Lárusar Weldings bara fyrir að byrja í bankanum voru hærri en ævitekjur flestra vinnandi manna. Rithöfundur þyrfti líklega að skrifa tugi metsölubóka til að vera andvirði eins fótspors hjá Lárusi Welding. Er þetta eðlilegt verðmætamat? Vita menn í hvað ICESAVE‐peningarnir fóru? Er það satt að þeir hafi verið lánaðir til Baugsfyrirtækja sem nú skulda hundruð milljarða á meðan eigendur fyrirtækjanna monta sig af lystisnekkjum, einkaþotum, lúxusíbúðum, sveitasetrum og hótelum? Það virðist hafa verið samkomulag fjármálafurstanna að lána hver öðrum út á veð sem ekkert stóð á bak við. Og þetta finnst stjórnvöldum bara allt í lagi; og þau ætla að fara hægt í sakirnar og ekki að dæma.

Eini vandinn er sá að þetta fékk ekki að halda áfram. Það segir Geir Haarde. Nákvæmlega sama viðhorf birtist hjá Jóni Ásgeiri. Maðurinn heldur því blákalt fram, og virðist trúa því sjálfur, af svipbrigðum hans að dæma, að fyrst þeir fengu ekki meira lán til að halda vitleysunni áfram þá hafi bara allt stoppað og það sé allt Davíð að kenna. Maður gæti haldið að Jón Ásgeir væri alinn við einhverja sérstaka útgáfu af Davíðssálmum, svo hugleikinn er Davíð honum. Jón Ásgeir notar sömu rök og drykkjumaðurinn sem segir að það sé allt í lagi að keyra fullur, bara ef hann er ekki tekinn, og þegar hann keyrir á ljósastaur er það ljósastaurnum að kenna. Síðasti bankinn sem ekki gat lánað, hann gerði mig gjaldþrota! Eigum við að kaupa þetta bull? Það kann vel að vera að eitt og annað hafi verið óheppilegt við yfirtöku bankanna, til dæmis Glitnis, en hefði verið heppilegt að lána banka sem var kominn í þrot miklar fjárhæðir? Ef ég skuldaði Jóni Ásgeiri margar milljónir myndi hann þá lána mér fleiri milljónir? Skuldir banka og fyrirtækja voru einfaldlega orðnar svo miklar að dæmið gekk ekki upp. Talað er um að Stoðir skuldi 260 milljarða, Eimskip um 200 og þar fram eftir götum.

Þess vegna erum við orðin þreytt á öllu þessu bulli. Við þessar aðstæður er ríkisstjórnin rúin öllu trausti nema hún taki til hendinni og beri niður þar sem eitthvað er að sækja. Það er rétt,

við ætlum ekki að borga skuldir óreiðumanna, en við erum farin að heyra mjálmið og afneitunina. Stjórnmálamennirnir munu fylla eyru okkar af langlokum og afsökunum. Þeir vonast til að geta setið af sér storminn eins og þeir eru vanir að gera. Eins og Bjarni Ármannsson var sérfræðingur í. Hann hefur kannski kennt þeim trikkin. Var það ekki Pétur Blöndal sem uppgötvaði Bjarna, Pétur Blöndal sem sagði þessa skemmtilegu setningu í þættinum Mannamál í sjónvarpinu á sunnudag: „g viðurkenni ekki neitt.”

Eitt hafa stjórnvöld þó framkvæmt, það er að koma sér upp sérsveit lögreglu, en að við séum búin að missa landið út úr höndunum, að hér ljúki sögu lýðveldisins, og það allt af því að örfáum fjárplógsmönnum var gefinn allt of laus taumur, það er auðvitað þyngra en tárum taki, því satt best að segja hef ég alltaf kunnað vel við lýðveldið og ég geri ráð fyrir að sakna þess þegar fram líða stundir.

Nei, ég get ekki gert mikið fyrir ríkisstjórnina, en vil þó nesta hana með einu ljóði sem henni er frjálst að fara með næst þegar hún hittir fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og önnur yfirvöld af veraldlegum toga, en það heitir einmitt Síðasta tilboð Íslendinga og er að finna í ljóðabók með því viðeigandi nafni:

Í auga óreiðunnar.

Því miður, herra framkvæmdastjóri, ég hef ekkert að bjóða í þessum samningaviðræðum nema þrjú tonn af kokteilsósu, örfá eintök af dýrafræði Jónasar frá Hriflu og allar hljómplötur Árna Johnsens.

Höfundur er rithöfundur.

 

 

26 replies on “ Má ekki bjóða yður þjóðskrána? – Einar Már Guðmundsson”

  1. Thank you a lot for providing individuals with a very wonderful chance to read articles and blog posts from this site. It’s always very amazing and jam-packed with a great time for me and my office co-workers to search your website at the least 3 times in one week to see the latest secrets you will have. And lastly, I’m so actually pleased with the wonderful methods you serve. Some two ideas in this article are rather the most beneficial we have ever had.

  2. I am just commenting to let you understand what a brilliant encounter my cousin’s child undergone reading yuor web blog. She even learned a good number of issues, including how it is like to have a very effective giving heart to get other individuals without problems learn about a number of grueling matters. You truly surpassed our expected results. I appreciate you for distributing those good, healthy, informative and cool guidance on the topic to Evelyn.

  3. I wish to express my respect for your generosity supporting people who should have help with this question. Your very own dedication to passing the message all around ended up being extremely invaluable and has in every case allowed most people like me to reach their endeavors. Your entire interesting information entails a whole lot a person like me and far more to my peers. Thanks a ton; from everyone of us.

  4. I just wanted to compose a quick note to say thanks to you for those marvelous tips you are posting at this site. My rather long internet lookup has at the end of the day been compensated with good quality strategies to talk about with my relatives. I ‘d claim that we readers actually are extremely endowed to live in a remarkable community with very many perfect individuals with valuable guidelines. I feel quite fortunate to have used your web pages and look forward to really more fabulous times reading here. Thank you again for a lot of things.

  5. I wish to get across my passion for your generosity giving support to those who really want assistance with this important situation. Your very own dedication to passing the solution throughout appears to be really powerful and have frequently enabled associates much like me to realize their aims. Your entire warm and friendly hints and tips entails a great deal a person like me and substantially more to my peers. Regards; from everyone of us.

  6. I wish to express my appreciation to the writer for rescuing me from this trouble. Just after exploring throughout the internet and coming across tips that were not beneficial, I figured my life was gone. Living without the presence of strategies to the issues you have resolved through your main guideline is a serious case, as well as the ones that would have badly damaged my entire career if I had not come across the website. Your good training and kindness in taking care of all the things was useful. I’m not sure what I would have done if I hadn’t discovered such a subject like this. I can also at this time look forward to my future. Thanks a lot very much for the professional and sensible guide. I won’t think twice to recommend the sites to any individual who needs care on this situation.

  7. After research just a few of the weblog posts on your web site now, and I really like your method of blogging. I bookmarked it to my bookmark web site list and shall be checking again soon. Pls check out my website online as well and let me know what you think.

  8. I needed to compose you one very little note in order to thank you so much once again just for the superb secrets you’ve contributed on this site. It is certainly shockingly open-handed with people like you giving openly all that most people might have sold as an e book to end up making some profit on their own, certainly now that you might well have done it in case you desired. The concepts in addition worked to become a good way to understand that many people have the same keenness really like my personal own to find out many more on the topic of this condition. I believe there are millions of more pleasant sessions up front for people who scan your blog post.

  9. I wish to voice my gratitude for your generosity in support of people who need guidance on that issue. Your special commitment to passing the solution all through was extraordinarily informative and have continuously helped associates much like me to achieve their goals. This important guideline entails so much a person like me and further more to my peers. Thank you; from everyone of us.

  10. I simply desired to appreciate you once again. I am not sure what I might have created without those tips and hints shown by you directly on such industry. It was actually a difficult dilemma in my position, however , seeing a new well-written style you managed it forced me to weep with gladness. I will be happier for the assistance and even believe you recognize what a great job you are carrying out educating the others by way of your webblog. Most probably you haven’t come across any of us.

  11. I intended to draft you the bit of word to be able to give many thanks the moment again for these unique pointers you have discussed in this article. It is extremely open-handed with you to offer openly exactly what a lot of folks might have offered as an electronic book to help with making some money for themselves, mostly considering that you could possibly have tried it in case you wanted. These suggestions in addition acted as the easy way to be certain that other people have the same desire just like mine to understand a great deal more in terms of this issue. Certainly there are lots of more fun situations ahead for individuals who take a look at your blog post.

  12. Thank you so much for giving everyone a very superb chance to read from this web site. It’s always very nice plus jam-packed with amusement for me and my office fellow workers to visit your blog particularly three times every week to read through the new issues you will have. And indeed, I’m usually impressed for the perfect concepts you give. Selected 2 tips in this posting are unequivocally the most suitable we have had.

  13. I and my pals happened to be checking out the excellent secrets and techniques on the blog while quickly got an awful suspicion I had not expressed respect to the web blog owner for them. All the guys came for this reason happy to see them and have unquestionably been tapping into them. Thank you for truly being indeed kind and for making a choice on this sort of perfect resources millions of individuals are really desirous to know about. My personal sincere regret for not saying thanks to sooner.

  14. Thank you a lot for giving everyone an extraordinarily spectacular chance to discover important secrets from this web site. It is often so kind and as well , packed with fun for me and my office co-workers to visit your web site at the least three times in one week to learn the latest guides you have. And definitely, I’m so at all times motivated considering the mind-blowing techniques you serve. Selected two areas on this page are rather the very best I have had.

  15. I and my guys ended up looking at the nice things found on your site and immediately developed a terrible suspicion I had not expressed respect to the blog owner for those tips. All of the boys came for this reason happy to read them and now have in reality been tapping into them. I appreciate you for simply being quite helpful and for having this kind of notable topics most people are really desirous to understand about. My personal honest apologies for not expressing gratitude to you earlier.

  16. I’m also writing to let you know what a outstanding experience my friend’s child found browsing your web page. She even learned numerous pieces, with the inclusion of what it’s like to possess a great giving mood to let certain people without hassle completely grasp various grueling subject matter. You really did more than our own expectations. Thanks for offering these helpful, safe, explanatory as well as unique tips on this topic to Kate.

  17. My husband and i felt cheerful that Louis could finish off his survey through the entire precious recommendations he acquired out of your site. It’s not at all simplistic to simply choose to be handing out secrets and techniques which others may have been selling. And now we know we need the writer to thank for this. All of the explanations you have made, the simple web site menu, the friendships you can make it easier to instill – it is most excellent, and it’s facilitating our son and our family recognize that that subject is exciting, which is exceptionally indispensable. Thanks for the whole lot!

  18. I really wanted to write a small remark so as to say thanks to you for all of the amazing tricks you are giving at this site. My prolonged internet investigation has now been rewarded with good details to talk about with my best friends. I ‘d suppose that many of us visitors are rather lucky to exist in a useful site with many special individuals with interesting pointers. I feel somewhat happy to have used your entire website page and look forward to really more fun times reading here. Thanks again for everything.

  19. I simply wanted to write down a simple word so as to appreciate you for some of the nice solutions you are giving here. My incredibly long internet lookup has finally been compensated with high-quality information to exchange with my friends and family. I would declare that we site visitors are rather fortunate to live in a fine community with many wonderful people with very helpful tips. I feel very much privileged to have come across your website and look forward to some more fun minutes reading here. Thanks once again for all the details.

  20. I have to show thanks to this writer for rescuing me from such a situation. Just after looking out throughout the world wide web and obtaining methods which were not pleasant, I figured my entire life was over. Existing without the approaches to the difficulties you have fixed through your main short post is a crucial case, and the ones which may have negatively affected my career if I had not discovered your site. Your own talents and kindness in touching every item was priceless. I am not sure what I would’ve done if I hadn’t come across such a point like this. I am able to at this moment relish my future. Thanks for your time so much for this reliable and result oriented help. I won’t think twice to suggest your web site to any individual who would need recommendations about this area.

  21. Thank you a lot for providing individuals with a very terrific chance to read in detail from this blog. It is often very awesome and full of a lot of fun for me personally and my office peers to search your blog really three times in 7 days to study the new secrets you will have. And of course, I’m also always amazed with the extraordinary opinions served by you. Selected two ideas in this post are particularly the most effective we’ve had.

  22. Needed to create you that bit of note to give many thanks again for these wonderful concepts you have documented in this article. It is certainly open-handed with people like you to deliver freely what exactly many individuals might have offered for sale as an electronic book to help make some profit for themselves, chiefly since you might have done it in case you desired. Those tactics also served like the great way to know that some people have the same passion just as my own to realize a little more with regard to this issue. I know there are millions of more pleasant occasions ahead for those who check out your blog.

  23. I wanted to construct a word so as to express gratitude to you for some of the stunning concepts you are writing on this website. My particularly long internet research has at the end of the day been rewarded with good knowledge to go over with my colleagues. I would point out that many of us visitors are extremely blessed to dwell in a great site with so many lovely professionals with helpful points. I feel quite happy to have used your entire website page and look forward to some more fun minutes reading here. Thanks again for all the details.

  24. I in addition to my buddies were analyzing the good thoughts from your website and at once I got a horrible suspicion I had not thanked the web site owner for those tips. All the men ended up for this reason happy to read through them and have in effect without a doubt been making the most of them. I appreciate you for really being indeed thoughtful and for going for some perfect themes millions of individuals are really wanting to understand about. My personal sincere regret for not expressing appreciation to sooner.

Comments are closed.