BorgarafundurVarðveittar færslur og myndir

Raffaella Tenconi – erindi á borgarafundi 12. janúar

Ræða flutt á Opnum borgarafundi #8

í Háskólabíó, mánudaginn 12. janúar 2009

 

Góða kvöldið, það er ánægjulegt að vera hér í kvöld

Ég býst við að það komi engum á óvart að við búumst við afar erfiðu efnahagsástandi framundan á Íslandi.
Við búumst við því að verg landsframleiðsla dragist saman um 11% á þessu ári og einnig lítillega árið 2010. Verðbólga er nálægt hápunkti, en helst há á næsta tólf mánuðum – þá á ég við tveggja stafa tölu yfir sumarmánuðina og í kjölfarið á því afar lágar tölum og líklega verðhjöðnun árið 2010.

Á þessari töflu sýni ég nokkra lykilvísa í þjóðhagslegu tilliti. Ég hef áður minnst á hagvöxt og verðbólgu. Staðan á viðskiptajöfnuði er mælikvarði á ytri veikleika hagkerfisins sem á eftir að batna. Hins vegar eiga halli ríkissjóð og skuldir hins opinbera eftir að aukast verulega í kjölfar bankahrunsins. Við búumst við mikilli lækkun vaxta og einhverri styrkingu krónunnar á nýju ári, þótt umfang og tímasetning beggja velti mikið á efnahagsstjórninni og vel heppnaðri framkvæmd nauðsynlegra úrbóta.

 

Það er mikilvægt að benda á að líklega er erfiðasti hluti þessara umbreytinga framundan en ekki að baki. Fjármálakreppan var harðneskjuleg og hefur nú þegar haft áhrif, en erfiðast er að ákveða og framkvæma allar þær breytingar sem þarf til að færa hagkerfið aftur til betri vegar og koma í veg fyrir eitthvað álíka í framtíðinni. Það felur í sér erfiðar ákvarðanir varðandi það hvernig hagkerfi þið viljið á næstu áratugum og pólitíska getu til að koma breytingum fljótt í framkvæmd, til að draga úr dýpt efnahagslægðarinnar.

 

Til að leggja áherslu á þetta skal benda á að þótt hagvaxtarspár mínar séu neikvæðar geta þær auðveldlega orðið jákvæðar. Fyrirtæki og heimili hafa aukið skuldir sínar mjög mikið á undanförnum árum og eru mjög viðkvæm fyrir sveiflum í verðbólgu og gengisfalli.

 

Auk þeirra sértæku vandamála sem Ísland stendur frammi fyrir er ástandið einnig slæmt á heimsvísu. Helstu hagkerfi heimsins standa frammi fyrir erfiðustu aðstæðum sem upp hafa komið á eftirstríðsárunum. Þetta hefur mikilvægar afleiðingar fyrir Ísland á tvennan hátt: tekjutap verður af rekstri/eignum Íslendinga erlendis og minna fjármagn er í umferð til að fjármagna og endurfjármagna skuldir Íslendinga. Þessara erfiðu áskoranir fela í sér að afar mikilvægt er að móta skýr markmið um þróun Íslands á næstu tíu árum til að stuðla að því að endurheimta traust, bæði innanlands og utan. Þetta er mikilvægt því Ísland þarf erlent fjármagn og til að laða það að, þarf að sýna fram á framtíðarstöðugleika.

 

Það má leggja áherslu á að Ísland í dag er ekki sama land og fyrir 20 árum. Hagkerfið hefur breyst gríðarlega og er ekki lengur fremur lokað hagkerfi sem byggir á fiskveiðum heldur opið hagkerfi þar sem ólíkir geirar eru mikilvægur þáttur í vergri landsframleiðslu eða í sköpun atvinnu. Þið hafið nú opið hagkerfi og miklar skuldir. Hafa ætti þessa tvo þætti í huga þegar horft er til framtíðar og ef þið viljið ekki einangra ykkur aftur og færa klukkuna aftur um 20 ár, ætti Íslandi að setja í framkvæmd allar nauðsynlegar aðgerðir svo það geti nýtt sér þessa opnun og sveigjanleika, en draga úr hættunni á því að verða aftur fórnarlamb erfiðs efnahagsástands á heimsvísu.

 

Hvað þýðir þetta? Það þýðir að það er mjög æskilegt að hafa stöðugri gjaldmiðil og viðeigandi kerfi til að laða að erlent fjármagn en draga úr kerfisbundinni áhættu – áhættu fyrir hagkerfið í heild sinni.
Þetta leiðir okkur að tveimur mikilvægum þáttum:

 

1. Það er æskilegt að hætta notkun krónunnar og taka upp útbreiddari gjaldmiðil – evru, bandaríkjadal eða einhvern annan. Evra væri eðlilegur kostur.

 

2. Útrýma þarf kerfisvandamálum sem stuðluðu að hruninu – þau eru aðallega:
– Of hagsveiflustýrð fjármálastjórn
– Of afbakað miðlunarferli peningastefnunnar
– Of miklar skuldir

 

Ég ætla ekki að fara í smáatriðum yfir hvern þessara þátta núna, en kjarninn er þessi:
of mikill vöxtur of fljótt ætti alltaf að hringja viðvörunarbjöllum. Fjármálastjórn ætti ekki að ýta frekar undir eftirspurn þegar hagvöxtur er þegar mikill, þess í stað ætti að byggja upp varasjóði svo hægt sé að grípa inn í þegar vandamál koma upp.
Geta ríkisstjórnar til að grípa inn í stendur í réttu hlutfalli við verga landsframleiðslu og þess vegna ættuð þið að forðast að vandamálin verði of stór í sniðum.
Og eitt vandamálanna við stöðuna áður en hrunið varð var að bankageirinn var orðinn of stór í samanburði við hagkerfið.
Auk þess virkaði peningastefnan ekki sem skyldi þar sem hún gat ekki haft áhrif á verð og magn útlána á nógu áhrifaríkan og fljótlegan hátt. Takast þarf á við þessi vandamál og leysa.

 

Snúum okkur aftur að spurningunni um gjaldmiðilinn, því þetta er mjög mikilvægt málefni sem þarf að leysa fljótlega.

A. Ísland getur ákveðið að halda krónunni sem gjaldmiðli á komandi áratugum. Það myndi þýða að gjaldmiðillinn yrði áfram afar óstöðugur og því fylgir há verðbólga, þar sem innfluttar vörur eru stór hluti af framfærslukostnaði. Til að hægt sé að gera þetta með sem minnstri áhættu fyrir hagkerfið í heild sinni, þarf að grípa til allra ofangreindra endurbóta og þær væru í raun mun mikilvægari í þessu tilviki. Til lengri tíma litið þýddi þetta að stærð bankageirans og fyrirtækja minnkaði þar sem skarpur óstöðugleiki gjaldmiðilsins hefur letjandi áhrif á fyrirtækin. Þetta þýðir einnig að núverandi umbreytingar verða sérstaklega erfiðar.


B. Annar valkostur er full aðild að Evrópusambandinu og Myntbandalagi Evrópu. Kosturinn við það er auðseljanlegur gjaldmiðill með Evrópska seðlabankann sem lánveitanda til þrautavara. Að grunni til er ríkisstjórn, og þar af leiðandi skattgreiðendur, þrautalánveitandi í hverju landi. Vegna smæðar sinnar mun Ísland alltaf hafa takmarkaða getu sem þrautalánveitandi. Aðgangur að lausafjársaðgerðum Evrópska seðlabankans er hins vegar talsverður kostur þegar erfiðleikar steðja að á heimsvísu, eins og núverandi erfiðleikar sýna. Það er hins vegar ekki auðvelt að ganga í ESB og EMU og jafnframt kostnaðarsamt. Það tekur a.m.k. 4-5 ár að ganga í evrópska kerfið: 1-2 ár til að ganga til atkvæðagreiðslu, sækja um, semja um skilmála til inngöngu, fá stuðning framkvæmdastjórnarinnar, Evrópuráðsins og Evrópuþingsins og að lokum að staðfesta samninginn. Auk þess tekur 2-3 ár að uppfylla kröfur Maastricht-samkomulagsins og reynsla ríkja í Mið- og Austur-Evrópu sýnir að stöðuga viðleitni þarf til að tryggja að skilmálar séu uppfylltir á réttum tíma þrátt fyrir áhrif breytilegra aðstæðna á heimsvísu. Það er fylgir líka ýmis kostnaður því að ganga í Evrópusambandið, t.d. við að ná samkomulagi um fiskveiðistjórnun og um framlag til fjárhagsáætlunar ESB (þó Ísland gæti hagnast af einstökum prógrömmum í byggðaáætlun ESB).


C. Annar valkostur er að taka upp annan gjaldmiðil einhliða, t.d. evru. Ef evra er tekin upp einhliða er framkvæmdin auðveld, en samt er nauðsynlegt að gera þær umbætur í hagkerfinu sem minnst var á áður. Þetta snýst ekki bara um að skipta um seðla og mynt. Þegar annar gjaldmiðill er tekinn upp getur seðlabankinn ekki útvegað peninga með því einfaldlega að prenta þá. Hagkerfið þarf að búa yfir nægu flæði og birgðum af erlendum gjaldeyri til að hægt sé að framkvæma allar nauðsynlegar færslur án fyrirhafnar – til dæmis nægt fé til að greiða fyrir innflutning, afgreiða ríkisskuldabréf, greiða laun o.s.frv. Umskiptin myndi einnig krefjast ytri eða viðbótaraðstoðar til að tryggja að vel takist til og með trúverðugum hætti. Þessi valkostur setur hömlur á vöxt hagkerfisins þar sem til þess þarf stöðuga uppsprettu erlends gjaldeyris.


Burtséð frá því er mikilvægt að víðtæk áætlun sé til staðar og að hún sé framkvæmd af kostgæfni og án hiks. Það versta væri annað hvort að fresta ákvörðuninni áfram eða taka ákvörðun og skipta svo um skoðun eða stöðva allar aðgerðir þegar hagkerfið réttir úr kútnum. Öllum þremur valkostunum fylgja áskoranir og kostnaður og öllum þremur fylgja kostir og tækifæri. Þjóðin þarf því að velja leiðina.


Þýðing: Guðmundur Erlingsson