Author Archives: borgarafundur
Upptaka Rásar 1 af borgarafundinum 8. nóvember
Hægt er núna að nálgast hljóðupptöku Rásar 1 á netinu í gegnum þennan hlekk, en sú var flutt í þætti Ævars Kjartanssonar: Í heyrandi hljóði þann 11. nóvember. Einnig er nú hægt að sjá myndupptökur af ræðum frummælenda af fundinum, hér a síðunni.
Opinn borgarafundur á NASA næsta mánudag
Þriðji opni borgarafundurinn verður mánudaginn 17. nóvember kl. 20:00 á NASA. Nú verður sjónum beint að ábyrgð og umfjöllun fjölmiðla á ástandinu. Fjölmiðlamenn munu mæta og sitja fyrir svörum. Þegar hafa Egill Helgason og Sigmundur Ernir staðfest komu sína. Enn er ekki komið á blað hverjir frummælendur verða og verður það auglýst síðar. Fjölmennum og …
Kæri Björgólfur
Halla Gunnarsdóttir blaðamaður flutti eftirminnilegt ávarp á opnum borgarafundi í Iðnó 8. nóvember. Ávarpið er hægt að nálgast hér í fullri lengd: Kæri Björgólfur
7 lausnir á efnahagsvandanum – Lilja Mósesdóttir
Lilja Mósesdóttir var ein af frummælendum síðasta borgarafundar. Hún flutti frábært erindi sem hún endaði með því að nefna 7 lausnir á efnahagsvanda okkar sem sérfræðingar í fjármálakreppum mæla með: Vaxtalækkun til að gera heimilum og fyrirtækjum kleift að ráða við skuldsetninguna 60% skattur á útstreymi fjármagns yfir 10 milljónir til að styrkja gengi krónunnar Viðvarandi …
Continue reading “7 lausnir á efnahagsvandanum – Lilja Mósesdóttir”