Aðgerðir í þágu heimilanna

Eftirfarandi hugmynd fengum við senda frá Þórði B. Sigurðssyni: Í kjölfar hruns efnahagskerfisins er ljóst að eitt af stóru málunum í dag snýst um húsnæðislán heimilanna. Eins og kunnugt hafa stjórnvöld nú gripið til þeirrar tímabundu ráðstöfunar að bjóða upp á frystingu afborgana erlendra lána til 4-6 mánaða. Beðið hefur verið eftir útspili stjórnvalda í …

Sláum skjaldborg um Alþingi

Samtökin Nýjir tímar hvetja alla til að mæta niður á Austurvöll klukkan 12:00 á morgun, miðvikudag – þann 19. nóvember, taka höndum saman og mynda SKJALDBORG utan um Alþingishús OKKAR íslendinga – enn og aftur!  Allir sem geta eru hvattir til að taka sér hádegishlé og sýna samstöðu. Öðruvísi sjáum við aldrei neinar breytingar!  Friðsamleg Mótmæli við Alþingishúsið …

Magnaður borgarafundur á troðfullu NASA

Borgarafundurinn á NASA heppnaðist með einsdæmum vel. Troðfullt var út úr dyrum og stemmningin mikil. Að þessu sinni var umtalsefni ábyrgð fjölmiðla. Að vanda voru fjórir frummælendur sem öll fluttu mögnuð erindi; þau Irma Erlingsdóttir, bókmenntafræðingur, Eggert Briem, stærðfræðingur, Björg Eva Erlendsdóttir, blaðamaður og Davíð A. Stefánsson, bókmenntafræðingur. Í pallborði sátu: Ólafur Stephensen ritstjóri Morgunblaðsins, Jón Kaldal …

Mótmælafundur á Austurvelli, 15. nóvember.

Þegar ég gekk inn á Austurvöll rétt upp úr hálfþrjú á laugardag voru ekki komnir margir á svæðið. Nokkrir stóðu við sviðið og fylgdust með undirbúningnum og Siggi Pönk og félagar veittu Jóni Sigurðssyni félagsskap og dreifðu efni sínu til vegfarenda. Mér flaug reyndar í hug að kannski myndi kuldinn fæla fólk frá, en það …

OPINN BORGARAFUNDUR #3

Á NASA við Austurvöll, mánudaginn 17. nóvember klukkan 20:00. Í pallborði verða ritstjórar og fréttastjórar helstu fjölmiðla landsins, auk fulltrúa frá Blaðamannafélagi Íslands. Hvetjum ríkisstjórn Íslands og alla alþingismenn til að mæta á svæðið, hlusta á sína kjósendur og vera með í umræðunni. Hvetjum ennfremur alla fjölmiðlamenn og konur til að mæta og taka þátt. …